Forsíða

Þessi síða er ætluð sem stuðningur fyrir nýja jafnt sem reynda kennara. Allir þurfa á stuðning og hvatningu að halda, ekki síst kennarar. Að skoða og fara yfir http://arnaru.golin.org/ er góð byrjun á hverjum kennsludegi og leiðir til betri afkasta í bæði námi og starfi. Síðan er byggð á námskeiðinu Nám og kennsla:Inngangur við Háskóla Íslands. Bæði á fyrirlestrum og hópatímum. Okkar markmið var að reyna að svara spurningunni hvað gerir kennara að góðum kennara? Við settum því hér upp tengla fyrir ofan, þar sem er listi yfir skilgreiningar á hugtökum sem okkur fannst gera kennara að góðum kennara. Einnig hér fyrir ofan er skoðunarkönnun sem hægt er að kjósa hvað ykkur finnst mikilvægast í fari kennara. Við ákváðum einnig að sjá hvað grunnskólanemendum fannst mikilvægt í fari kennara. Fórum við á þrjú mismunandi aldurskeið og sögðum þeim að segja okkur hvernig góðum kennara væri lýst í þremur lýsingarorðum. Hér fyrir ofan í tenglinum börnin er hægt að sjá svör þeirra ásamt aldri. Í tenglinum um okkur er hægt að finna netföngin okkar og hægt að hafa samband ef það þarf að breyta eða bæta einhverju við.

Vonum að þessi síða nýtist ykkur í komandi námi!


Hver erum við?

Við erum þrír nemar á menntavísindasviði við Háskóla Íslands sem tókum okkur til og settum fram skilgreiningar okkar á góðum kennara. Vonandi kemur þetta að góðum notum og endilega sendið okkur póst ef einhverjar spurningar eða athugasemdir vakna.